Dagur reykskynjarans 2026
Eru þínir reykskynjara í lagi?
Björnis brunabangsi heimsótti Boga Ágústson fréttamann og Sögu Garðarsdóttir leikkonu og tók út brunavarnir á heimilum þeirra.
Nauðsynlegt er að hafa reykskynjara í öllum rýmum heimilisins og það er mikilvægt að prófa reykskynjarana að lámarki einu sinni á ári.
Reykskynjarinn getur bjargað mannslífum!
Reykskynjarar
Reykskynjarar eiga að vera í öllum helstu rýmum heimilisins.
Eldvarnarteppi
Er eldvarnateppi á þínu heimili? Er slökkvitæki á þínu heimili?
Flóttaleiðir
Þekkir þú flóttaleiðir út af þínu heimili ef það verður eldsvoði?
Hæ, ég er Björnis brunabangsi
Ég er Björnis brunabangsi og kem frá Noregi, stundum er ég kallaður Bjössi brunabangsi. Ég vinn við að aðstoða slökkviliðin í landinu við að fræða börn og fullorðna um brunavarnir. Allt frá því að ég var lítill, loðinn bangsahúnn og sá slökkvibíl í fyrsta skipti hefur mig dreymt um vera í slökkviliði.
Nú er ég kominn í slökkviliðið og stefni að því að verða mikilvægasti bangsi Íslands! Ég er fyrst og fremst hér fyrir börnin, en ég legg mig fram við að fræða alla fjölskylduna, líka ömmu og afa.
Björnis eigið eldvarnaeftirlit

Sækja litabækur

Brunavarnir heimilisins
Taka þarf tillit til ólíkra heimila þegar brunavarnir eru settar upp. Ef heimilið er hæðaskipt þarf að gera ráð fyrir að flóttaleiðir séu á öllum hæðum og í fjölbýli þarf að huga að því að stigahús séu með brunavarnir í lagi. Timburhús eru einstaklega mikill eldsmatur.
Vertu eldklár
Samstarfsaðilar
Eldklár er samstarfsverkefni HMS og LSS um brunavarnir og er okkar markmið að fræða landsmenn um brunavarnir.



Fræðsluefni
Hér má nálgast ýmsan fróðleik um brunavarnir








