Brunavarnir heimilisins

Eru reykskynjarar, slökkvitæki og eldvarnarteppi á þínu heimili?

Er til flóttaáætlun á þínu heimi og vita allir hvað á að gera ef að eldur kemur upp?

Reykskynjarar

Ódýr öryggistæki sem geta bjargað mannslífum

Slökkvitæki

Öflug og geta slökkt í minniháttar eldum.

Flóttaleiðir

Öll heimili ættu að hafa skipulagðar flóttaleiðir og flóttaáætlanir. 

Fræðsluefni

Vertu ELDKLÁR á þínu heimili og hafðu brunavarnir eins og þær eiga að vera!

Reykskynjarar

Reykskynjarar eru ódýr öryggistæki sem geta bjargað mannslífum. Hér er hægt að fræðast betur um þá.

Eldvarnarteppi

Komi eldur upp í potti eða pönnu er eldvarnarteppið ykkar besti vinur. Hér er hægt að fræðast betur um þau.

Slökkvitæki

Slökkvitæki eru öflug og geta slökkt í minniháttar eldum. Hér er hægt að fræðast betur um þau.

Gátlistar

Brunavarnir þurfa að vera í lagi á öllum heimilum. Notaðu gátlistann og farðu yfir brunavarnir heimilisins.

Flóttaleiðir og flóttaáætlanir

Öll heimili eiga að hafa skipulagðar flóttaleiðir og flóttaáætlanir. Hér má fræðast betur um það.

Raftæki & aðrir hitagjafar

Raftæki og aðrir hitagjafar eins og kertlajós, arineldur og jólaseríur eru stór partur af lífi okkar flestra en geta þó snögglega snúist upp í andhverfu sína ef umgengnin er ekki örugg.

Mis­mun­andi eld­varn­ir eft­ir heim­il­um

  • Ef heimilið er á fleiri en einni hæð er mikilvægt að hafa reykskynjara á öllum hæðum.  Þá er einnig nauðsynlegt að tryggja að flóttaleiðir séu út af öllum hæðum hússins
  • Ef heimilið er í stærri kantinum er góð regla að samtengja reykskynja svo að heimilisfólk verði alveg örugglega vart við hættuna, komi upp eldur
  • Ef bílskúr fylgir húsinu er einnig mikilvægt að reykskynjarinn þar sé samtengdur reykskynjurum heimilisins
  • Mikilvægt er að hafa reykskynjara staðsetta í stigagöngum húsa
  • Í þvottahúsum skal gæta þess að hreinsa ló reglulega í þurrkurum, en ló er einstaklega góður eldsmatur
  • Ef upp kemur eldur skal ekki nota lyftuna
  • Ef eldur kemur upp í stigagangi getur verið best að halda sig inni á heimilinu og loka hurðinni tryggilega. Farið frekar út á svalir eða í glugga og fangið athygli þar og bíðið eftir aðstoð
  • Ef heimilið er á fleiri en einni hæð er mikilvægt að hafa reykskynjara á öllum hæðum. Þá er einnig nauðsynlegt að tryggja að flóttaleiðir séu út af öllum hæðum hússins
  • Aðgang­ur að svala­dyr­um á að vera greiður og auðvelt þarf að vera að opna þær. Flótta­leiðir eiga að vera opn­an­leg­ar inn­an frá, án lyk­ils
  • Notið stiga­ganga ekki sem geymsl­ur til að tryggja greiða flóttaleið úr húsinu
  • Enginn afsláttur er gefinn af slökkvitækjum í fjölbýlishúsum, gangið úr skugga um að slík tæki séu að finna við alla útganga
  • Sömu reglur gilda einnig um reykskynjara, einn í hverju rými
  • Timbur og eldur eru þokkalegir vinir og því getur eldur verið fljótur að breiða sér um húsið, komi hann upp. Það þarf því að huga sérstaklega vel að brunavörnum í timburhúsum
  • Ef húsið hefur farið í gegnum breytingar er tilvalið að lesa sér vel til í reglugerð og tryggja að bruna- & eldvarnir séu með réttu móti
  • Brunavarnir eru ekki einungis hin heilaga þrenning – reykskynjari, eldvarnarteppi og slökkvitæki – brunavarnir eru nefnilega líka innbyggðar í hús
  • Heilaga þrenningin spilar stórt hlutverk þegar um timburhús er að ræða. Gætið þess að hafa reykskynjara samtengda og gangið úr skugga um að slökkvitæki séu alveg örugglega við alla útganga
Shopping Basket